Lokað verður 30. desember og 2. janúar vegna vörutalningar í verslun og á verkstæði
Vegna sumarleyfa frá 21. september - 26. september verður minni mannskapur á verkstæði og afleysingafólk í verslun. Viljum við því taka fram að það verður smá þjónustuskerðing þá daga. Biðjumst velvirðingar á þeim óþægindum sem það kann að valda.
Í samstarfi við birgja okkar bjóðum við upp á sérpantanir á öllum stærðum og gerðum af dekkjum fyrir viðskiptavini okkar og bjóðum sama verð.
Hversu gott er að geta sparað sér fyrirhöfn og ferðakostnað og um leið styrkt við þjónustu í heimabyggð fyrir sama peninginn?
Heima er best :)
Opnunartími um jól og áramót:
23. desember:
Verslun opin 8-12 og 13-20
Verkstæði opið 8-12 og 13-17
24. desember:
Verslun opin 10-12
25. desember:
Lokað
31. desember:
Lokað
1. janúar:
Lokað
3. janúar:
LOKAÐ vegna vörutalningar í verslun og verkstæði
Kæru viðskiptavinir.
KM þjónustan ehf. hefur verið í góðum og farsælum rekstri síðustu tuttugu árin og nú er komið að tímamótum hjá eigendum sem hafa ákveðið að selja reksturinn. Kaupandi og nýr eigandi KM þjónustunnar er Vilhjálmur Hörður Guðlaugsson sem hefur starfað hjá fyrirtækinu síðastliðin átta ár. Eigendaskipti fóru fram 1. september.
KM þjónustan verður áfram rekin í sömu mynd, þ.e. verkstæði, verslun og dráttarbílaþjónusta ásamt ýmissi þjónustu sem fyrirtækið hefur annast.
Seljendur, Karl Ingi og Steinunn, starfa áfram hjá KM þjónustunni og færir Karl sig yfir í verkefni á verkstæði en Steinunn sinnir áfram sambærilegum störfum á skrifstofu/verslun.
Við óskum nýjum eiganda til hamingju með fyrirtækið og velfarnaðar í rekstri fyrirtækisins.
Verslun KM þjónustunnar verður lokuð föstudaginn 3. janúar vegna vörutalningar. Opnað verður að nýju mánudaginn 6. janúar.
Fyrir áramót verður opið föstudagin 27. desember og mánudaginn 30. desember en samkvæmt venju er lokað í KM þjónustunni á gamlársdag og nýársdag.
Hátíðarkveðjur!
Verslun KM þjónustunnar er opin á aðfangadag kl. 9:00-13:00. Kalli stendur vaktina með heitt kaffi. Gleðileg jól!