Frettir » Bílvelta
Í dag þurfti að fara á kranabíl að sækja bíl á Skógarströndina en sá hafði oltið út af. Þetta er fimmta bílveltan þetta sumarið á Skógarströnd, þ.e. á kaflanum milli Bildhóls og Straums. Í öllum tilfellum hefur verið um bílaleigubíla að ræða og útlendingar á ferð sem væntanlega hafa ekki mikla reynslu af akstri á malarvegum en vegurinn á Skógarströnd þykir í verra lagi.