Gleðilegt ár!

Skrifað 31 December 2012


KM þjónustan þakkar góð samskipti á árinu sem er að líða og óskar ykkur alls hins besta á komandi ári.  Gleðilegt ár!

Lesa alla fréttina

Gleðileg jól!

Skrifað 25 December 2012


KM þjónustan óskar þér og þér og þér og öllum hinum gleðilegra jóla.  Njótið hátíðar ljóss og friðar með gleðibrosi allt um kring.  Þið eruð öll yndisleg og við líka, KM gengið.      Gleðileg jól!

Lesa alla fréttina

Góð skötuveisla

Skrifað 22 December 2012


Kalli og Binni að sjóða

KM þjónustan tók forskot á sæluna og hélt skötuveislu á verkstæðinu í gær.  Það er orðin hefð að slá upp veislu fyrir KM fjölskylduna en það er nokkuð ljóst að sú fjölskylda stækkar ört með hverju árinu.  Takk fyrir komuna börnin góð, þetta var góð skemmtun!  Myndirnar eru komnar í möppu desembermánaðar.

Lesa alla fréttina

Kaffihúsakvöld Auðarskóla

Skrifað 17 December 2012


Í kvöld héldu nemendur á mið- og unglingastigi Auðarskóla sitt árlega kaffihúsakvöld.  Það er alltaf gaman að sjá unga fólkið á sviði og ekki er verra þegar góð fórnarlömb úr sal eru tekin með í leikinn, a.m.k. þegar þau eru úr liði karlkyns kennara.  Skjöldur og Kiddi fengu að finna vel fyrir því og líklegast ekki í fyrsta skiptið, sjá má myndir í myndamöppu desembermánaðar.  

Lesa alla fréttina

Sölusýning

Skrifað 4 December 2012


Steinunn Matthíasdóttir er með nokkrar ljósmyndir á sýningu í verslun KM þjónustunnar.  Strigamyndirnar eru til sölu og verða til sýnis fram að jólum en myndir í ramma eru í eigu KM þjónustunnar.

Lesa alla fréttina

jólaljós

Skrifað 29 November 2012


KM þjónustan er dottin í jólagírinn en þar má nú finna jólaljós og perur til sölu í versluninni.  Við erum m.a. með útiseríur (LED) sem má tengja saman og inniljós.  Það er ávallt kaffi á könnunni og hver veit nema eitthvað fari í nammiskálina okkar fínu þegar dregur nær jólum.

Lesa alla fréttina

Norðurljós

Skrifað 14 October 2012


Norðurljós yfir myllunni í Búðardal.

Himininn getur verið fallegur á dimmum íslenskum vetrarkvöldum og ekki síst þegar norðurljósin láta á sér kræla.  Nokkuð hefur borið á þeim undanfarið og gert er ráð fyrir tíðum sólgosum og sólstormum í vetur sem skilar sér í miklum norðurljósum.  Nokkrar myndir eru komnar í myndasafn októbermánaðar.
-S.M.

Lesa alla fréttina

strætó

Skrifað 2 September 2012


Strætó fór sína fyrstu áætlunarferð frá Búðardal í dag.  Magnús Bjarki Böðvarsson og Sunna Björk Karlsdóttir voru fyrstu farþegarnir sem nýttu sér þennan ferðamáta frá Búðardal.  Strætó býður upp á þráðlaust internet og rafmagnshleðslu fyrir tölvur.  Unga fólkið ákvað að reyna á þessa tækni og ætlaði sér að Facebook "lana" á leiðinni eða vera virk á facebook og væntanlega að segja ferðasögu sína.

Lesa alla fréttina

Nýjar myndir

Skrifað 29 August 2012


Nýjar myndir eru komnar í ágústmöppu en þær voru teknar fyrr í sumar þegar Steina Matt kíkti í heimsókn með myndavélina.
KIK

Lesa alla fréttina

Viðar

Skrifað 26 August 2012


Þetta er Viðar trukkatöffari. 
[smá fréttainnskot til að halda síðunni lifandi...]

Lesa alla fréttina

110 11 12 13 1422