Frettir » Kaffihúsakvöld Auðarskóla
Í kvöld héldu nemendur á mið- og unglingastigi Auðarskóla sitt árlega kaffihúsakvöld. Það er alltaf gaman að sjá unga fólkið á sviði og ekki er verra þegar góð fórnarlömb úr sal eru tekin með í leikinn, a.m.k. þegar þau eru úr liði karlkyns kennara. Skjöldur og Kiddi fengu að finna vel fyrir því og líklegast ekki í fyrsta skiptið, sjá má myndir í myndamöppu desembermánaðar.
Takk fyrir skemmtunina krakkar!
- SM