Frettir » Landinn
KM þjónustan var heimsótt af Gísla fréttamanni og Kalla upptökustjóra úr þættinum Landanum í dag. KM Kalli fékk það hlutverk að vera viðmælandi og var spurður út í viðgerðir á bílum, umferð gegnum Dali, starfsemi KM og margt fleira. Þeir félagar voru duglegir að mynda, bæði að innan sem utan. Þátturinn verður sýndur á RÚV í mars en eins og sést eru menn heldur smekklega skreyttir skeggi enda mottumars í fullum gangi.