íslenska veðrið

Skrifað 27 July 2013


Þokan lét sjá sig

Veðrið er sígilt umfjöllunarefni og ekki síst þegar það er búið að haga sér líkt og var í vikunni.  Við höfum fengið fallega sólardaga, hvort sem er með vel þekktum blæstri eða logni, og svo hefur sjaldséð þoka heldur betur látið sjá sig.  Það er ekki algengt að þokan nái yfir í Búðardal en þó er það búið að gerast óvenjuoft þetta árið, hún getur alveg verið sjarmerandi í hófi.  Nokkrar þokumyndir hafa fengið að rata í myndaalbúm júlímánaðar ásamt myndum af fallegri kvöldbirtunni.