Steypuvinna

Skrifað 7 September 2013


Gösli í steypunni

Í vikunni var tekið á því í KM þjónustunni og gólfið í bragganum steypt.  Áður hafði farið töluverð vinna í að hreinsa út úr bragganum og hann sprautaður að innan, Kalli og Binni sameinuðust í því verki.  Það komu margir að steypuvinnunni sjálfri en þar voru Gösli múrari, Bjarni á Leiðólfsstöðum, Gubbi í Magnússkógum, Gústi í Hjarðarholti, Kiddi Thorlacius og Binni í KM.  Veðrið var ekki að auðvelda verkið því inn á milli var gríðarlegt úrhelli en menn létu það ekki trufla framgang vinnunnar og héldu gleði sinni allan tímann.  Myndir frá framkvæmdum eru komnar í myndamöppu