Tilkynning frá Vörumiðlun

Skrifað 18 April 2013


Þar sem Vörumiðlun ehf. hefur keypt flutningafyrirtækið af KM þjónustunni verða eftirfarandi breytingar á akstursleiðum:

 

Ekið er alla daga í Búðardal.

Ekið er alla daga til Hólmavíkur nema miðvikudaga.

Akstri um Strandir sem verið hefur á fimmtudögum verður hætt.

Ekið verður frá Hólmavík um Strandir til Búðardals fyrsta og þriðja þriðjudag hvers mánaðar.

Vonumst við til að Strandabúar og aðrir á þessari leið geti nýtt sér þessa þjónustu.

Aðrar áætlanir verða óbreyttar að svo stöddu.

Vörumiðlun ehf. er með afgreiðslu á Landflutningum og Flytjanda í Reykjavík og einnig á  Akureyri auk þess að vera með starfsstöðvar á Hólmavík, Búðardal, Hvammstanga, Blönduósi og höfuðstöðvar á Sauðárkróki.

Með bestu óskum um gott samstarf.

 

Vörumiðlun ehf.

Eyrarvegi 21

550 Sauðárkróki