Kassabílarallý

Skrifað 19 June 2012


Fyrsta kassabílarallý KM þjónustunnar verður haldið á hátíðinni Heim í Búðardal helgina 6.-8. júlí. Ungir sem aldnir ökuþórar eru hvattir til að skrá sig og sýna hvað í þeim býr.  Hjörtur tekur við skráningum í síma 8682884.
Eftir kl. 17:00 þriðjudaginn 3. júlí geta keppendur komið með fararskjóta sína í KM þjónustuna og fengið faglega aðstoð við að leggja lokahönd á smíðina og finna út úr vandamálum.
Við hvetjum foreldra, afar og ömmur sérstaklega til að aðstoða unga ökuþóra með þátttöku og við smíðar.

Upplýsingar um nánari tímasetningu verða birtar fljótlega á dalir.is og km.is.

Góða skemmtun við undirbúninginn og munið að það er EKKERT ALDURSTAKMARK!